Björgunargalli fari í öll skip

Ásbjörn Óttarsson alþingismaður hvatti til þess á Alþingi í dag að reglugerð um björgunarbúnað í skipum yrði breytt sem fæli í sér að í öllum skipum yrði til staðar björgunarflotgalli. Samkvæmt núverandi reglum þarf slíkur galli aðeins að vera í skipum stærri en 12 tonn.

Í skipum undir 12 tonn að stærð á að vera svokallaður vinnugalli, en Ásbjörn sagði að rannsóknir hefðu leitt í ljós að hann fæli í sér falskt öryggi. Menn sem færu í sjóinn í vinnugalla lifðu einungis í um 20 mínútur.

Ásbjörn sagði að frá 2004 hefði legið fyrir tillaga frá siglingaráði um að gerð verði breyting á reglugerð sem fæli í sér að öllum skipum sem róa í atvinuskyni yrði gert að vera með um borð björgunarflotbúning. Ásbjörn sagðist hafa rætt þetta mál við fyrrverandi samgönguráðherra árið 2009, en ekkert hefði gerst. Hann hvatti til þess að reglugerð yrði breytt áður en strandveiðar hæfust í sumar.

Ögmundur sagði fullt tilefni til að fara yfir þessi mál. Hann sagðist ætla að gera það og láta þingmanninn vita um niðurstöðu sína.

Af mbl.is