Námskeið um samskipti við fjölmiðla

Námskeið um samskipti við fjölmiðla og fleira verður haldið á Grand hóteli í Reykjavík, föstudaginn 4. maí 2017.  Námskeiðið verður haldið undir heitniu Verið viðbúin! Hér að neðan má sjá frekari námskeiðslýsingu. Hafnirnar eru hvattar til að senda fulltrúa á námskeiðið. Þeir sem hafa áhuga þurfa að skrá sig á tenglinum hér að neðan. Námskeiðsgjald er 12.000 krónur.

Fyrsti hluti – 10.00-12.00

Á námskeiðinu „Verið tilbúin“ er fjallað um fjölmiðla, eðli þeirra og tilgang, samskipti við þá og mikilvægi þess að vinna með þeim en ekki á móti.  Umhverfi fjölmiðlunar verður skoðað sérstaklega með tiliti til þeirrar breytinga sem átt hafa sér stað með innreið netfréttamiðla og tenginga þeirra við samfélagsmiðla. Þá er farið yfir þær áskoranir sem fylgja stóraukinni notkun samfélagsmiðla og nauðsyn þess að fyrirtæki marki sér skýra stefnu varðandi þá.

Annar hluti 13.00-15.00
Í öðrum hluta verður farið yfir mikilvægi þess að bregðast rétt við áföllum strax í upphafi.  Sérstök áhersla verður lögð á framkomu í fjölmiðlum og nauðsyn undirbúnings auk annara þátta. Farið verður yfir nýleg mál sem komið hafa upp í höfnum landsins og ratað hafa í fjölmiðla og umfjöllun um þau mál skoðuð og greind.

Að auku munu tveir hafnarstjórar fjalla um reynslu sína af samskiptum við fjölmiðla í málum sem komið hafa upp nýverið.

  • Gísli Gíslason Hafnarstjóri Faxaflóahafna mun fjalla um áhuga og umfjöllun  fjölmiðla þegar Perlan sókk í Reykjavíkurhöfn.
  • Lúðvík Geirsson hafnarstjóri Hafnafjarðarhafna mun fjalla um Polar Nanuq og dagana þegar skipið lá við landfestar við Hafnarfjarðahöfn og umsátur myndaðist um Hafnarfjarðarhöfn.

Að endingu munu umræður eiga sér stað.
Fyrirlesarar eru ráðgjafar Athygli: Árni Þórður Jónsson, Kolbeinn Marteinsson og Bryndís Nielsen.

Á meðal atriða námskeiðs:

  • Hverju sýna fjölmiðlar áhuga?
  • Mikilvægi fyrstu viðbragða
  • Einn talsmaður – lykilskilaboð
  • Hvernig á að koma fram í fjölmiðlum
  • Að „halda haus“ við áföll
  • Samfélagsmiðlastefna