Átak gegn slysum á sjó

Sam­göngu­stofa, í sam­starfi við Hafnasamband Íslands, Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg og fjölda aðila í sjáv­ar­út­vegi, vinn­ur að út­gáfu tólf ra­f­rænna vegg­spjalda sem hlotið hafa nafnið „12 hnút­ar“. Fyrsta spjaldið var gefið út 19. janúar sl. og síðan verða gefin út eitt í hverj­um mánuði þar eft­ir fram að lok­um árs.

„Til­gang­ur þessa verk­efn­is er að fjalla um og und­ir­strika ýmsa þá mann­legu þætti sem oft leiða til slysa á sjó. Stór­lega hef­ur dregið úr al­var­leg­um slys­um á sjó og þykir nú orðið tíðind­um sæta ef bana­slys verður. Hins veg­ar eiga sér enn stað at­vik sem leitt geta til al­var­legra slysa. Oft eru þetta af­leiðing­ar til­tek­inna viðhorfa, af­stöðu, úr­eltra venja og ým­iss ann­ars í mann­legri hegðun sem aukið geta lík­urn­ar á slys­um. Með 12 hnút­um vilj­um við upp­ræta þessi atriði en á spjöld­un­um er getið um fyr­ir­byggj­andi aðgerðir sem við von­um að sjó­menn til­einki sér,“ segir Einar Magnús Magnússon hjá Samgöngustofu.