Virðingarleysi fyrir félögum

Spjaldið ber yfirskriftina „Virðingarleysi fyrir félögum“ og í fyrirbyggjandi aðgerðum er lögð áhersla á að fólk beri virðingu fyrir tilfinningum, skoðunum og persónugerð annarra. Sýni nýliðum, ungmennum og starfsfólki af erlendum uppruna sérstaka tillitsemi og uppræti allt baktal, lítillækkun, einelti og hverskonar ofbeldi og áreiti. Bent er á að með því að gera lítið úr öðrum er maður í raun að lítillækka sjálfan sig. 

DAGATAL Á ÍSLENSKU OG ENSKU

Vakin er sérstök athygli á því að nú í lok árs verða sent út dagatal sem gert hefur verið og byggir á spjöldunum 12. Því verður dreift til útgerðaraðila og helstu hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Hægt verður að panta enska útgáfu dagatalsins ef þess er óskað með því að senda tölvupóst merktan „12 hnútar“ á fraedsla@samgongustofa.is.

Íslenska spjaldið nr. 12 má nálgast hér neðst á síðunni: www.samgongustofa.is/12hnutar 
Enska spjaldið má nálgast hér neðst á síðunni: www.icetra.is/12knots