Hafnasamband Íslands hefur sent inn umsögn um drög að reglugerð um Loftslags- og orkusjóð. Í umsögninni er fagnað þeim breytingum sem fela í sér aukinn umsóknarrétt hafna og hærra hámarksstyrkhlutfall, sem talið er mikilvægt til að hraða orkuskiptum í höfnum og styðja við loftslagsmarkmið stjórnvalda.
Hafnasambandið bendir jafnframt á að skýra þurfi betur ákvæði reglugerðarinnar um styrkhæfi verkefna sveitarfélaga þannig að ekki leiki vafi á því að orkuskiptaverkefni hafna, svo sem uppbygging landtenginga skipa, geti notið stuðnings úr sjóðnum. Þá leggur Hafnasambandið til að orkuskipti í höfnum verði skilgreind sérstaklega sem áhersluverkefni sjóðsins.
Nánar má lesa umsögnina í meðfylgjandi skjali.