Mikilvægi hafna sem grunninnviða samfélagsins

Hafnasambandsþing er fór fram í Reykjanesbæ 22.-23. október sl. samþykkti ályktun þar sem lögð er áhersla á mikilvægi hafna sem grunninnviða samfélagsins. Meðal helstu áherslumála eru aukin fjárfesting í hafnarinnviðum og efling Hafnabótasjóðs, fyrirsjáanleg fjármögnun hafnarframkvæmda, endurskoðun hafnalaga og gjaldtökuheimilda, stuðningur við orkuskipti og bætt aðgengi að dýpkunarþjónustu. Þá er Alþingi hvatt til að fresta gildistöku laga nr. 19/2026 þar til reglugerð um nánari framkvæmd liggur fyrir.

Frá Hafnasambandsþingi sem haldið var í Reykjanesbæ 22. og 23. október 2026. (Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir)

Ályktun Hafnasambandsþings 2026

Hafnasambandsþing Hafnasambands Íslands, haldið í Reykjanesbæ 22.–23. október 2026, ítrekar að hafnir landsins eru meðal mikilvægustu innviða samfélagsins og gegna lykilhlutverki í atvinnulífi, samgöngum, útflutningi, byggðaþróun og öryggi landsins. Spár benda jafnframt til aukinnar skipaumferðar á norðurhöfum á næstu áratugum. Sú þróun mun auka umferð skipa um íslenskt hafsvæði og þörf fyrir aðstöðu, þjónustu og uppbyggingu öryggisinnviða í íslenskum höfnum.

Helstu áherslur þingsins eru:

  • Efla hafnir sem mikilvæga innviði þjóðarinnar.
  • Auka fjárfestingu í hafnarinnviðum og styrkja Hafnabótasjóð.
  • Tryggja fyrirsjáanlega og sanngjarna fjármögnun hafnarframkvæmda.
  • Ljúka endurskoðun gjaldskrárákvæða hafnalaga.
  • Hefja heildarendurskoðun hafnalaga.
  • Styðja orkuskipti í höfnum með uppbyggingu innviða og fjárhagslegum stuðningi.
  • Tryggja samráð við breytingar á gjaldtöku vegna skemmtiferðaskipa.
  • Finna lausnir til að tryggja aðgengi að dýpkunarþjónustu.
  • Efla samstarf Hafnasambands Íslands, Alþingis og stjórnvalda.

Þingið brýnir fyrir Alþingi og stjórnvöldum að tryggja nauðsynlega uppbyggingu og endurbætur á hafnaaðstöðu vítt og breitt um landið. Styrkja þarf hafnainnviði og efla Hafnabótasjóð verulega til að tryggja framgang brýnna viðhalds- og framkvæmdaverkefna. Jafnframt þarf að skýra hlutverk sjóðsins og úthlutunarreglur.

Samhliða þessu þarf að tryggja fyrirsjáanlega fjármögnun hafnaframkvæmda til lengri tíma, með skýrum viðmiðum um hlutdeild ríkisins. Við forgangsröðun og fjármögnun þarf meðal annars að líta til samfélagslegs og þjóðhagslegs mikilvægis verkefna, framkvæmdakostnaðar og fjárhagslegrar getu viðkomandi hafna og sveitarfélaga. Ótækt er að kostnaður vegna uppbyggingar hafnainnviða sem nauðsynlegir eru til að framfylgja stefnu og skyldum ríkisins, meðal annars á sviði varnarmála og þjóðaröryggis, sé alfarið lagður á hafnir og sveitarfélög.

Hafnasambandsþingið fagnar því að hafin sé vinna við endurskoðun gjaldskrárákvæða hafnalaga. Þingið leggur áherslu á að tryggðar verði skýrar og traustar lagaheimildir til gjaldtöku sem endurspegli raunverulegan kostnað við rekstur, viðhald og uppbyggingu hafnarmannvirkja, þar með talið sanngjarna hlutdeild í sameiginlegum kostnaði. Þingið skorar á Alþingi að ljúka þeirri vinnu á yfirstandandi löggjafarþingi. Jafnframt ítrekar þingið að hefja þurfi heildarendurskoðun hafnalaga, enda endurspegla núgildandi lög engan veginn þær miklu breytingar sem orðið hafa á hlutverki og starfsemi hafna á síðustu áratugum. Setja þarf skýra verk- og tímaáætlun fyrir þá vinnu í nánu samstarfi við helstu hagaðila.

Þá leggur þingið ríka áherslu á að stjórnvöld komi að uppbyggingu þeirra innviða sem nauðsynlegir eru til orkuskipta í höfnum, svo sem landtenginga og annarra innviða fyrir afhendingu orku til skipa. Slíkar fjárfestingar eru mikilvæg forsenda þess að ná markmiðum stjórnvalda um samdrátt í losun frá skipum og hafnastarfsemi en eru víða umfram fjárhagsgetu einstakra hafna. Þingið skorar því á stjórnvöld að koma á virku samstarfi við hafnir og sveitarfélög og tryggja markvissan fjárhagslegan stuðning við uppbyggingu slíkra innviða, meðal annars með beinum stofnstyrkjum í samræmi við það sem tíðkast víða í Evrópu.

Loks ítrekar þingið mikilvægi þess að breytingar á skatta- og gjaldtökuumhverfi skemmtiferðaskipa séu undirbúnar í nánu samráði við Hafnasamband Íslands, hafnir og sveitarfélög og byggðar á vönduðu mati á áhrifum á rekstur hafna, atvinnulíf og byggðaþróun um land allt. Tryggja verður að gjaldtaka ríkisins rýri hvorki svigrúm hafna til eigin gjaldtöku né tekjur þeirra af þjónustu við skemmtiferðaskip.

Þingið ítrekar mikilvægi þess að hér á landi sé staðsettur tækjabúnaður fyrir dýpkanir fyrir minni hafnir. Skortur á tryggu og hagkvæmu aðgengi að slíkum búnaði hér á landi getur haft áhrif á viðhald, þjónustustig og öryggi hafna.

Þingið leggur þunga áherslu á að Alþingi fresti gildistöku laga nr. 19/2026 sem taka á gildi um áramótin varðandi innleiðingu tilskipunar ESB um móttökuaðstöðu hafna enda vantar reglugerð um nánari framkvæmd lagabreytingarinnar.

Hafnasambandsþingið lýsir sig reiðubúið til áframhaldandi samstarfs við Alþingi og stjórnvöld um eflingu hafna sem grunninnviða íslensks samfélags.