Mannvirki við gömlu höfnina í Reykjavík friðuð

Gamla höfnin í Reykjavík – mynd tekin af vefsíðu Ljósmyndasafns Reykjavíkur

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að friða elstu mannvirkin við gömlu höfnina í Reykjavík. Um er að ræða eftirfarandi steinhleðslur, sem gerðar voru á árinunum 1913-1945:

  • Ingólfsgarður (1913)
  • Norðurgarður (1915)
  • Steinhleðslur við Suðurbugt (1928-1930)
  • Ægisgarður, eystri hleðsla (1932-1935)
  • Steinhleðslur við Víkina og Verbúðarbryggjur, frá Rastargötu til Bótabryggju (1940-1945).

Elstu varnargarðarnir í Reykjavíkurhöfn, Ingólfsgarður og Norðurgarður voru á sínum tíma stærstu framkvæmdir sem unnar höfðu verið á Íslandi og þykja bera vönduðu handverki gott vitni.  Aðrar steinhleðslur, sem gerðar voru á fyrri hluta síðustu aldar, voru unnar á svipaðan máta og teljast hafa mikið varðveislugildi.

Skip við bryggju á gömlu höfninni í Reykjavík – mynd frá Faxafóahöfnum.