Hafnarstjórar geta vísað skipum frá

FernandaHafnarstjórar hafa, samkvæmt hafnarlögum, völd til þess að vísa frá skipi ef því fylgja hættur. Málið er flóknara ef skip er komið úr hættuástandi, segir formaður stjórnar Hafnasambands Íslands.

Gísli Gíslason, formaður stjórnar Hafnasambands Íslands, segir að hafnarstjórar hafi samkvæmt lögum rétt til að vísa skipi frá ef mönnum og umhverfi stafar af því hætta. Málið sé hins vegar flóknara þegar talið er að hætta sé liðin hjá. Gísli segir að samkvæmt lögum eigi skip í sjávarháska rétt á að koma til hafnar. „Í þeim tilvikum sem menn hafa ákveðið hverjar neyðarhafnirnar eru þá verða menn að taka við skipum í slíkum tilvikum. Það er tvennt ólíkt í sjálfu sér að skip í sjávarháska með áhöfn um borð það auðvitað hefur mikinn forgang. Þetta kannski snýr öðruvísi við þegar skip er í rauninni komið úr hættuástandi og er orðið flak þá virðist regluverkið ætla að verða svolítið flóknara. Aðspurður hvort hafnarstjórinn hafi einhver völd í þessu máli segir Gísli: „Já já, hafnarstjóri hefur þau völd að því leiti að hafnir eru að vísu móttökuskyldar en ef að skip getur valdið hættu á heilbrigði eða fólki þá getur hann sagt nei.

Lagt var til í skýrslu frá 2008 að Hafnarfjarðarhöfn verði ásamt öðrum skilgreind sem ein af neyðarhöfnunum en tillögurnar hafa ennþá ekki verið staðfestar með formlegum hætti.

Frétt af vef RUV.