Föstudaginn 15. nóvember nk. verður haldin vinnustofa um mótun sameiginlegrar langtímastefnu fyrir aðildarhafnir Hafnasambands Íslands í Húsi Sjávarklasans, Grandagarði 16. Vinnustofan hefst stundvíslega kl. 12:00 með hádegismat og stendur til kl. 16:00.
Eins og mörg ykkar vita þá hefur Íslenski sjávarklasinn undanfarið undirbúið mótun sameiginlegrar stefnu. Þegar hefur verið lögð vefkönnun fyrir aðildarhafnir. Við hvetjum þá sem ekki hafa tekið þátt í henni til að gera það sem fyrst. Hægt er að hafa samband við Hauk Má Gestsson hjá Sjávarklasanum (haukur@sjavarklasinn.is) ef vantar nýjan tengil á könnunina.
Gert er ráð fyrir að á vinnustofuna mæti einn til tveir aðilar frá hverjum hafnarsjóði, hafnarstjóri eða næstráðandi.
Vonumst við til að allir hafnasjóðir sjái sér fært að senda fulltrúa á vinnustofuna en skráning fer fram hér.
Skráningu lýkur mánudaginn 11. nóvember.
Vinnufundur um mótun sameiginlegrar stefnu fyrir hafnir Íslands
Staður: Hús Sjávarklasans, Grandagarði 16, Reykjavík
Stund: Föstudagurinn 15. nóvember frá 12:00 til 16:00