Í gær, sunnudaginn 5. júní 2016, skrifaði Gísli Gíslason, formaður Hafnasambands Íslands, undir samkomulag milli hafnasambandsins, Umhverfisstofnunar, og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum.
Samningsaðilar eru sammála um að þær útgerðir sem ekki nýta móttökuaðstöðu viðkomandi hafna beri að skila gögnum til viðkomandi hafnaryfirvalda um magn og tegund úrgangs sem berst í land frá fiskiskipum. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi mun senda Umhverfisstofnun yfirlit yfir þau fyrirtæki sem nýta sér þessa heimild einu sinni á ári. Fyrirtæki í sjávarútvegi sem nýta sér þessa heimild ber að skila gögnum til viðkomandi hafnaryfirvalda um magn og tegund úrgangs sem berst í land frá þeirra fiskiskipum hið minsta mánaðarlega.
Hafnir skila þessum upplýsingum til Umhverfisstofnunar einu sinni á ári eigi síðar en 1. mars í samræmi við 7. gr. reglugerðar nr. 1200/2014 um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum til Umhverfisstofnunar.
Umhverfisstofnun mun svo í samráði við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Hafnasamband Íslands gera árlega samantekt um virkni þessa samkomulag.
