Samgöngustofa, í samstarfi við Hafnasamband Íslands, Slysavarnafélagið Landsbjörg og fjölda aðila í sjávarútvegi, vinnur að útgáfu tólf rafrænna veggspjalda sem hlotið hafa nafnið „12 hnútar“. Fyrsta spjaldið var gefið út 19. janúar sl. og síðan verða gefin út eitt í hverjum mánuði þar eftir fram að lokum árs.
„Tilgangur þessa verkefnis er að fjalla um og undirstrika ýmsa þá mannlegu þætti sem oft leiða til slysa á sjó. Stórlega hefur dregið úr alvarlegum slysum á sjó og þykir nú orðið tíðindum sæta ef banaslys verður. Hins vegar eiga sér enn stað atvik sem leitt geta til alvarlegra slysa. Oft eru þetta afleiðingar tiltekinna viðhorfa, afstöðu, úreltra venja og ýmiss annars í mannlegri hegðun sem aukið geta líkurnar á slysum. Með 12 hnútum viljum við uppræta þessi atriði en á spjöldunum er getið um fyrirbyggjandi aðgerðir sem við vonum að sjómenn tileinki sér,“ segir Einar Magnús Magnússon hjá Samgöngustofu.