Umsögn um samgönguáætlun 2026-2040

Stjórn Hafnasambands Íslands hefur skilað inn til Alþingis umsögn um samgönguáætlun 2026-2040 og fimm ára aðgerðaráætlun 2026-2030. Í umsögn sinni fagnar stjórnin því að lögð sé fram langtíma samgönguáætlun sem fjallar með markvissum hætti um siglingamálefni og hafnir. Jafnframt bendir hafnasambandið á að brýnt sé að samgönguáætlun tryggi aukna fjármögnun þannig að unnt sé að vinna á viðhaldsskuld, efla öryggi og auka getu hafna til að mæta nýjum kröfum.

Í umsögninni tiltekur Hafnasambandið fimm megináherslur. Þær eru:

  • Hafnabótasjóður: Auka þarf fjármagn og tryggja áhrifamat og sveigjanleika vegna fyrirhugaðra breytinga á styrkhlutföllum, sérstaklega fyrir öryggis-, ferju- og varnartengd verkefni.
  • Orkuskipti í höfnum: Stóraukið fjármagn og átak til orkuskipta og samhæfing við raforkukerfi.
  • Siglingaöryggi og merkingar: Tryggja þarf fjármagn og átak til siglingaöryggis og merkinga m.a. vegna breyttrar nýtingar hafsvæða.
  • Sjóvarnir og loftslagsaðlögun á hafnarsvæðum: Auka þarf fjármagn ásamt skýrri forgangsröðun.
  • Öryggishlutverk hafna: Hlutverk hafna í öryggismálum landsins viðurkennt og eflt. Hafnir skilgreindar sem hluti af öryggis- og varnargetu Íslands, í ljósi aukinnar varnartengdra framlaga og aukinna krafna um viðbúnað og móttökugetu.

Umsögn Hafnasambands Íslands um samgönguáætluin 2026-2040.