![Kópavogshöfn Kópavogshöfn](http://hafnasamband.is/wp-content/uploads/2012/01/Kópavogur-006-300x225.jpg)
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan fjögur aðfararnótt sunnudagsins 15. janúar út af bát sem hafði sokkið í höfninni í Kópavogi. Slökkviliðið dældi vatni upp úr bátnum og var að næstu þrjá tímana, eða þar til félagar í Hjálparsveit skáta í Kópavogi voru fengnir til þess að aðstoða lögregluna þar á bæ.
Ekki er vitað hversvegna báturinn sökk.