Strandsiglingar að hefjast að nýju

(mynd innanríkisráðuneytið/mbl.is)
Starfshópur um strandsiglingar skilaði tillögum til innanríkisráðherra

Starfshópur innanríkisráðherra um hvernig koma megi strandsiglingum á að nýju hefur skilað ráðherra tillögum sínum. Leggur hópurinn til að leitað verði tilboða í siglingarnar samkvæmt ákveðnum forsendum þar sem boðið verði í meðgjöf ríkisins til nokkurra ára meðan siglingarnar koma undir sig fótunum. Miðað er við tilraunaverkefni til nokkurra ára og að því loknu standi siglingarnar undir sér.

Innanríkisráðherra skipaði snemma á síðasta sumri starfshóp til að leggja fram tillögur um hvernig standa megi að því að koma á strandsiglingum að nýju. Markmiðið er að hefja strandsiglingar sem tryggja hagkvæma sjóflutninga á vörum innanlands og stuðla að lægri flutningskostnaði, jákvæðri byggðaþróun með auknum tækifærum og samkeppnishæfni fyrirtækja á landsbyggðinni, segir í tilkynningu.

Hópurinn skoðaði mögulega flutninga, greindi skipakost, áætlaðan rekstrarkostnað útgerða, viðkomuhafnir, tíðni ferða, áætlun um sjálfbært flutningsverð og önnur atriði sem skipt geta máli. Farið var yfir ýmsar skýrslur og greinargerðir sem fyrri starfshópar höfðu lagt fram. Hópurinn gerði markaðsrannsóknir í samvinnu við atvinnuþróunarfélög undir stjórn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða. Þá var kannaður áhugi flutningsaðila á strandflutningum svo og áhugi framleiðenda og annarra kaupenda vöruflutninga.

Vikulegar siglingar

Niðurstaða hópsins er sú að leggja til að strandsiglingar verði boðnar út. Gerð hafa verið drög að rekstraráætlun fyrir skip og undirbúin gögn fyrir hugsanlegt útboð en Ríkiskaup voru til ráðgjafar um þann þátt. Samkvæmt markaðsrannsóknum er líklegt að flytja megi í strandsiglingum rúmlega 70 þúsund tonn á ári til að byrja með. Flutningar muni aukast þegar þjónustan hefur fest sig í sessi. Miðað er við að skip sigli hringinn frá höfuðborgarsvæðinu umhverfis landið í viku hverri og sinni flutningum milli hafna á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum. Gefur það möguleika á flutningi milli þessara hafna bæði á hráefni og afurðum fyrir framleiðslufyrirtæki en einnig á margs konar dagvöru fyrir verslun og þjónustu.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Guðmundur Kristjánsson formaður starfshópsins

Innanríkisráðherra mun nú fara yfir tillögurnar og í framhaldinu kynna hugsanlegt útboð í ríkisstjórninni. Stefnt er að því að undirbúningur og útboð geti farið fram á þessu ári og að tilraunastrandsiglingar gætu þá hafist í byrjun næsta árs.

Starfshópinn skipuðu: Guðmundur Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarhafnar, formaður, Sigurður Örn Guðleifsson, lögfræðingur innanríkisráðuneytinu, Pétur Ólafsson, skrifstofustjóri Akureyrarhöfn, Ögmundur Hrafn Magnússon, lögfræðingur fjármálaráðuneytinu, Kristján Helgason, deildarstjóri hafnasviðs hjá Siglingastofnun Íslands, Unnar Jónsson rekstrarfræðingur og Etna Sigurðardóttir hjá Vegagerðinni.

Frétt á mbl.is 24. janúar 2012