Úttekt og greining á fjárhagsstöðu íslenskra hafna 2025

Greining þessi verður aðeins aðgengileg í stafrænu formi. Hægt er að hlaða niður síðunni sem PDF skjal og gögnum úr upplýsingaöfluninni sem Excel skjal neðst á síðunni.

Samantekt

Líkt og á fyrri árum hefur Þróunarsvið Sambands íslenskra sveitarfélaga tekið saman skýrslu um fjárhagsstöðu aðildahafna Hafnasambands Íslands. Söfnun upplýsinga fór fram með þeim hætti að forsvarsaðilum hafnarsjóða var send fyrirspurn í formi Excel-skjals þar sem þeir voru beðnir um að færa inn viðeigandi upplýsingar. Þessar upplýsingar ná til gagna úr ársreikningi (þ.e. rekstrar, efnahags og sjóðstreymis), bakgrunnsupplýsinga og annarra viðeigandi atriða. Í ár bárust svör frá 29 af 31 aðildarhafnarsjóðum Hafnasambandsins.

Eftirfarandi upplýsingum var safnað var fyrir úttekt og greiningu fjárhagsstöðu hafnarsjóðanna 2025

Rekstrarreikningur

  • Rekstrartekjur alls 
    • Tekjur af aflagjöldum
    • Tekjur af vörugjöldum 
    • Tekjur af vörugjöldum
    • Tekjur vegna skemmtiferðaskipa
    • Aðrar tekjur
  • Rekstrargjöld alls
    • Laun og tengd gjöld
    • Annar rekstrarkostnaður 
    • Afskriftir
  • Fjármunaliðir 
  • Óreglulegir liðir
  • Rekstrarniðurstaða 

Efnahagsreikningur

  • Eignir
  • Veltufjármunir 
  • Skuldir og skuldbindingar
    • Skammtímaskuldir 
    • Langtímaskuldir 
  • Eigið fé

Sjóðstreymisyfirlit

  • Fjárfestingarhreyfingar samtals 
    • Veltufé frá rekstri
    • Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum 
    • Aðrar fjárfestingarhreyfingar
  • Fjármögnunarhreyfingar samtals 
    • Tekin ný langtímalán
    • Afborganir langtímalána 
    • Aðrar fjármögnunarhreyfingar
  • Breyting á handbæru fé

Framkvæmdaáætlun

  • Framkvæmdir, nettó 
    • Framkvæmdir alls 
    • Áætlaðar endurgreiðslur ríkis/Hafnabótasjóðs

Bakgrunnsupplýsingar

  • Fjöldi stöðugilda
  • Útflutningur (tonn) 
  • Landaður afli (tonn) 
  • Rafmagnssala (KW) 

Helstu niðurstöður úr rekstri hafnarsjóða Íslands árið 2025:

  • Stöðugildum fjölgar um fimm milli ára
  • 2% samdráttur í inn- og útflutningi í tonnum en hlutdeild hafnarsjóðanna helst að mestu leyti óbreytt
  • 100.000 tonna samdráttur í lönduðum afla en hlutdeild þriggja stærstu hafnanna eykst um 5%
  • 7% aukning á rafmagnssölu þrátt fyrir samdrátt á rafmagssölu Faxaflóahafna
  • Heildartekjur jukust um rúman milljarð króna milli ára og var aukningin svipuð milli tekjuþátta
  • Framlegð hafnarsjóðanna í heild stóð í stað milli ára
  • Rekstrarniðustaða hækkar í hlutfalli við tekjur um 6%
  • 40% aukning á fjárfestingum milli ára
  • Eiginfjárhlutfall hafnarsjóða í heild hækkar
  • Skuldahlutfall hafnarsjóða í heild lækkaði um 7% og mest hjá Grindavíkurhöfn og Sandgerðishöfn
  • Fimm hafnarsjóðir hafa alvarlega eða mikla áhættu en 17 hafnarsjóðir með enga áhættu

Umsvif hafnarsjóða

Í töflunni hér að neðan má leita í leitarglugga að sérstökum hafnarsjóðum, raða gildum dálkanna í hækkandi eða lækkandi röð og fletta yfir á næstu síður til þess að sjá fleiri hafnarsjóði. Þetta á við um allar töflur í skýrslunni.

Heildarfjöldi stöðugilda árið 2025 voru 222 og fjölgar þeim um fimm frá fyrra ári. Hlutdeild þeirra fjögurra hafnarsjóða með flest stöðugildi er 59% og hækkar um tvö prósentustig milli ára.

Í kökuritinu má smella á eða halda bendli á einstaka kökusneiðar eða heiti einstakra hafnarsjóða til þess að sjá nánar um hvaða hafnarsjóð hver kökusneið heyrir til. Hafnarsjóðir sem ekki eru teknir sérstaklega fram er hópað saman í flokkinn aðrir hafnarsjóðir en sjá má stöðugildi þeirra í töflunni að ofan.

Samdráttur í inn- og útfluttum tonnum má rekja til minni innflutnings. Ef litið er til síðustu 5 ára þá hefur útflutningur í tonnum dregist saman um 11% síðan 2022, samanborið við 4% samdráttur í innfluttum tonnum. Mikill samdráttur var í inn- og útflutningi frá höfnum Norðurþings sem rekja má til rekstrarstöðvunar PPC í september 2025. Frá 2024 til 2025 dróst innflutningur í tonnum í gegnum hafnir Norðurþings um 83%, en ekki bárust tölur vegna útflutnings fyrir 2025. Útflutt tonn frá Þorlákshöfnum jukust um 38% milli ára og hlutdeild þeirra í útfluttum tonnum um hafnir landsins í heild jókst um 3% á milli ára. Frá Reykjaneshöfn jókst innflutningur í tonnum um 20% og þar með hlutdeild þeirra í innflutningi um hafnir landsins í heild um 2%.


Helst má rekja hækkun á rafmagnssölu hafnarsjóðanna til Hornafjarðarhafnar, Vopnafjarðarhafnar og Stykkishólmshafnar. Samtals jókst rafmagnssala þessara hafna um 1 milljón KWh frá 2024 til 2025. Rafmagnssala dróst saman um 1,5 milljónir KWh hjá Faxaflóahöfnum og ekki bárust tölur í fyrra frá höfnum Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2024.

Rekstur hafnarsjóða

Hjá þriðjungi hafnarsjóða dróust tekjur saman frá 2024 til 2025 þó að í heild hafi tekjur hafnarsjóðanna aukist.



Veltufé frá rekstri batnaði markvert, um 6%, og sömuleiðis rekstrarniðurstaðan á meðan skuldahlutfallið lækkar.



Framlag frá aðalsjóði Grindavíkurbæjar til Grindavíkurhafnar hljóp á 1,1 milljaði króna. Sú upphæð skýrir að mestu leyti batnandi rekstrarniðurstöðu hafnarsjóðanna í heild.





Aukning er að stærstum hluta tilkomin vegna fjárfestinga hjá Faxaflóahöfnum, með smiði á Vör farþegamiðstöð.





Þeir hafnarsjóðir sem hafa lítil umsvif eru viðkvæmari fyrir breytingum á lykiltölum eins og skuldahlutfalli. Þá er vert að skoða upphæðirnar sem liggja að baki. Á myndritið að ofan vantar skuldahlutfall Súðavíkurhafnar og Hvammstangahafnar sem hjá báðum höfnum er um 2.000%.

Áhættumat hafnarsjóða

Fjórir þættir úr rekstri hafnasjóða eru notaðir til þess að gera áhættumat um stöðu reksturs sveitarfélags. Fyrir hvert atriði sem hafnarsjóðurinn mætir ekki eykst áhættumatið um eitt þrep. Þrepin eru í heildina fimm: engin, lítil, nokkur, mikil, alvarleg. Ef áhættumatið er alvarlegt þá mætir hafnarsjóðurinn öllum atriðum sem hækka áhættu hennar á hverju tímabili.

Atriði sem hækka áhættu í áhættumati

  • Eigið fé er neikvætt
  • Veltufé frá rekstri er neikvætt
  • Skuldahlutfall er yfir 150%
  • Veltufjárhlutfall er undir 100%



Ef litið er til dreifingar hafnarsjóðanna eftir áhættumatsflokkum þá eru þrír hafnarsjóðir með alvarlegt áhættumat, tveir með mikla, fjórir með nokkra, þrír með litla en 17 með enga áhættu samkvæmt matinu. Það gildir um alla hafnarsjóðina sem hafa alvarlegt áhættumat að áhættan hefur aukist frá árinu áður. Því má draga þá ályktun að viðsnúningur getur orðið á áhættunni á næsta ári og ekki er um viðvarandi ástand að ræða. Áhættumat er óbreytt milli ára hjá 19 hafnarsjóðum, eykst hjá fjórum þeirra og dregst saman hjá fjórum.

Breyting á áhættumati frá 2024 til 2025

  • Hafnir Norðurþings bæta við sig áhættuþætti og fer úr nokkurri í alvarlega áhættu
  • Hólmavíkurhöfn og Hvammstangahöfn bæta báðar við sig áhættuþætti og fara úr mikilli í alvarlega áhættu
  • Blönduóshöfn bætir við sig áhættuþætti og fer úr lítilli í nokkra áhættu
  • Bolungarvíkurhöfn og Grundarfjarðarhöfn minnka báðar við sig áhættuþætti og fara úr lítilli í enga áhættu
  • Langaneshafnir minnka við sig áhættuþætti og fara úr nokkurri í litla áhættu
  • Grindavíkurhöfn minnkar við sig áhættuþætti og fer úr mikilli áhættu í enga

Niðurhal á efni skýrslu

Smellið á viðeigandi hnapp til þess að hlaða niður gögnunum skýrslunnar eða skýrslunni í heild sinni.


Úttekt og greining á fjárhagsstöðu íslenskra hafna 2023
Útgefin: 24. október 2024
Samband íslenskra sveitarfélaga
Þróunarsvið
Borgartúni 30
Pósthólf 8100 – 128 Reykjavík
Ábyrgðaraðili: Sólveig Ástudóttir Daðadóttir