Hafnasambandsþing verður haldið í Félagsheimilinu Klifi Ólafsvík, Snæfellsbæ, dagana 27.-28. október 2022. Þátttökugjald á þinginu er 25.000 krónur.
Fundargögn
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur 2020 – Ársreikningur 2021
- Fjárhagsáætlun 2023 og 2024
- Tillögur til ályktunar
- Tillögur um árgjöld 2023-2024
- Úttekt og greining á fjárhagsstöðu íslenskra hafna 2021
- Fjöldi fulltrúa á hafnasambandsþingi 2022
- Lagabreytingar (engar lagabreytingar hafa borist)
Ályktanir fundarins
Ályktun um veiðarfæraúrgang
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 fagnar auknum áhuga SFS á söfnun og endurvinnslu veiðarfæraúrgangs en SFS ber ábyrgð á öllum veiðarfæraúrgangi óháð uppruna hans. Hafnasambandið hvetur hafnir sem og sveitarfélög til að leita beint til SFS ef upp koma vandamál tengd veiðarfæraúrgangi.
Samþykkt samhljóða
Ályktun um flokkun úrgangs í skipum
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 leggur til að stjórn Hafnasambandsins verði falið að hefja viðræður við Umhverfisstofnun og SFS um samræmda flokkun úrgangs í skipum með hliðsjón að nýjum lögum um meðhöndlun úrgangs sem og öðrum lögum og reglum er gilda um úrgang í skipum. Í framhaldinu er mikilvægt að leiðbeina sveitarfélögum um hvernig hægt er að innleiða samræmda flokkun í höfnun í sérstaka samþykkt sveitarstjórna um meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða
Ályktun um stuðning við orkuskipti í höfnum
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 brýnir fyrir stjórnvöldum að tryggja raunverulegan stuðning til fjárfestinga og framkvæmda til orkuskipta í höfnum og koma af fullum krafti og alvöru í þessi mikilvægu verkefni. Einnig þurfi að tryggja að viðskiptamódel og lagaumhverfi sé þannig upp sett að orkufyrirtæki sjái sér hag í að selja orku beint til notenda í höfnum en ekki að hafnir séu þvingaðar til að vera milliliður í þeim viðskiptum.
Ályktun um skipaafdrep (neyðarhöfn)
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 skorar á ríkisvaldið að fyrst og fremst sé skilgreint betur lagalega hverjar séu skyldur og ábyrgðir skipaafdrepa og neyðarhafna og að tryggt sé að þær hafnir geti staðið undir nauðsynlegum búnaði og viðhaldi. Einnig þarf að tryggja að kostnaður vegna neyðartilvika lendi ekki á höfnum sem er ekki í aðstöðu til að lágmarka tjón sitt vegna neyðartilvika enda geta komið upp atvik þar sem ónýt skip sitja föst við bryggju í mánuði og ár.
Ályktun um öryggi og aðgengi að höfnum
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 hvetur hafnastjórnir til að huga vel að öryggi og aðgengi að höfnum en reynslan sýnir að aldrei er of varlega farið og fara þarf reglulega yfir öll öryggis og aðgengismál. Hvatt er til þess að hafnir deili á milli sín góðri reynslu um hvernig hægt er að tryggja öryggi allra á hafnarsvæðinu en á sama tíma tryggja vöxt mismunandi atvinnugreina og öruggt aðgengi almennings þar sem við á.
Ályktun um framlög til nýframkvæmda og endurbóta
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 leggur ríka áherslu á að í nýrri samgönguáætlun Alþingis verði stóraukið framkvæmdafé til nýframkvæmda, endurbóta hafnarmannvirkja og orkuskipta.
Ályktun um aflagjöld á eldisfist og eldisseiði
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 skorar á Alþingi að gera hið fyrsta breytingar á hafnalögum sem tryggja að aflagjald sé lagt á eldisfisk og eldisseiði miðað við heildarverðmæti.
Ályktun um farþegagjald
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 skorar á ráðherra innviðarmála að skerpa á ákvæðum hafnarlaga um farþegagjald. Eðlilegt er að tekið sé gjald af ferðaþjónustu til að standa undir rekstri og fjárfestingum í höfnum. Skýra þarf sérstaklega að sú aðstaða sem þegar er fyrir hendi og nýtt er af hafnsækinni ferðaþjónustu, falli undir ákvæði laganna og reglugerða.
Ályktun um áherslur við endurskoðun hafnalaga
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 ítrekar fyrri áherslur sínar varðandi nauðsynlegar breytingar á hafnalögum sem kynntar hafa verið fyrir ráðuneyti og í umsögnum við þau frumvörp sem lögð hafa verið fram á síðustu árum en ekki hlotið afgreiðslu Alþingis.
Ályktun um ytri mörk hafnarsvæða
Hafnasambandsþing haldið í Ólafsvík dagana 27. og 28. október 2022 mótmælir harðlega þeim hugmyndum sem fram hafa komið í tillögu að breytingu á hafnalögum varðandi þrengingu á mörkum ytri hafnarsvæða. Með slíkum breytingum er ákvörðunarréttur hafna verulega skertur auk þess sem hafnir vítt og breytt um landið munu verða fyrir tug milljóna tekjutapi vegna farþegaskipa sem hafa í stórum mæli nýtt sér aðstöðu á ytri hafnarsvæðum. Brýnt er að hafnaryfirvöld hafi ríkt ákvörðunarvald varðandi mörk hafnarsvæða m.a. til að tryggja þar siglingaöryggi og siglingarrými allra skipa og hafi einnig skýra aðkomu að öllu skipulagi vegna umferðar og starfsemi á þessum svæðum.
Dagskrá – fimmtudagur 27. október
10:00 | Skráning þátttakenda |
10:30 | Setningarávarp Lúðvík Geirsson, formaður stjórnar Hafnasambands Íslands |
Kosning þingforseta, ritara og nefnda | |
Ávarp frá innviðaráðuneytinu Ólafur Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri | |
Skýrsla stjórnar Lúðvík Geirsson, formaður stjórnar Hafnasambands Íslands | |
Ársreikningar 2020 og 2021, tillögur um árgjöld og fjárhagsáætlanir Hanna Björg Konráðsdóttir | |
Úttekt og greining á fjárhagsstöðu íslenskra hafna 2021 Sigurður Á. Snævarr, sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga | |
Úttekt á gjaldskrármálum Gísli Gíslason, fv. hafnarstjóri Faxaflóahafna | |
Umræður og fyrirspurnir | |
12:00 | H Á D E G I S H L É |
13:00 | Staða fiskeldis – áskoranir hafna og sveitarfélaga Guðrún Anna Finnbogadóttir sjávarútvegsfræðingur |
Framkvæmdaskýrslan – nýframkvæmdir og endurbætur 2021-2031 Sesselía Dan Róbertsdóttir hagfræðingur | |
Samgönguáætlun Fannar Gíslason, forstöðumaður hjá Vegagerðinni | |
Sjávarútvegur í Snæfellsbæ Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi Deloitte | |
Umræður og fyrirspurnir | |
14:00 | Nefndastörf |
15:15 | Skoðunarferð um hafnir Snæfellsbæjar |
20:00 | Hátíðarkvöldverður |
Dagskrá – föstudagur 28. október
09:00 | Nefndastörf – framhald |
10:00 | Sophirðumálin úrvinnslusjóður – lausnir og leiðir fyrir hafnir Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm lögfræðingur |
Sjávarútvegsskóli unga fólksins – verkefni með HA – tengill á RUV Arnfríður Eide Hafþórsdóttir | |
Umræður og fyrirspurnir | |
11:15 | Nefndaálit lögð fram – umræður og afgreiðsla |
Kosning stjórnar og varastjórnar Hafnasambands Íslands til tveggja ára og kosning skoðunarmanna og varamanna til tveggja ára | |
Ákvörðun um hafnasambandsþing 2024 og hafnafund 2023 – Hafnasambandsþing 2024 verður á Akureyri – Hafnafundur 2023 verður í Hafnarfirði | |
12:00 | Þingslit Formaður stjórnar Hafnasambands Íslands |