Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 31. janúar 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski um 10% og hækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 5%.
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila.
Breytingin tók gildi 1. febrúar 2013.
