Beiðni um umsögn

Aðildarhöfnum er bent á að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um hafnalög (ríkisstyrkir o.fl.), 577. mál. Nefndin óskar þess að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 13.mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is eða bréflega til Nefndasviðs Alþingis, Austurstræti 8-10, 150 Reykjavík.

Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis:http://www.althingi.is/altext/141/s/0982.html
Vakin er athygli á því að allar umsagnir um málið birtast á vef Alþingis undir fyrirsögninni Innsend erindi á síðu viðkomandi þingmáls.
Bent skal á að leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni www.althingi.is/vefur/nefndaumsagnir.html.

Kveðja
Sigrún Helga Sigurjónsdóttir
ritari nefndasviðs Alþingis.