Drög að viðbragðsáætlun sóttvarna

Drög að viðbragðsáætlun sóttvarna – hafnir og skip, kynnt fyrir hagsmunaaðilum – Faxaflóahafnir

Fimmtudaginn 1. september 2016 var haldinn fundur í húsnæði Faxaflóhafna sf., þar sem kynnt var fyrir hagsmunaaðilum drög að nýrri viðbragðsáætlun sóttvarna – hafnir og skip. Á fundinn mættu 50 manns og var því salurinn fullsetinn.

Viðbragðsáætluninni er ætlað að segja fyrir um skipulag og stjórn aðgerða í sóttvarnaaðgerðum þegar grunur leikur á að smitandi sjúkdómur eða annað atvik sem ógnað getur lýðheilsu sé að finna um borð í skipi sem er á leið til landsins, staðsett í höfn eða á leið frá landinu eftir dvöl í íslenskri höfn.

Áætlunin verður vistuð á vefsíðu almannavarna, www.almannavarnir.is og vefsíðu Sóttvarnarlæknis www.landlaeknir.is. Áætlunin mun taka gildi fljótlega eftir áramót.