Gísli Gíslason endurkjörinn formaður Hafnasambands Íslands

Gísli Gíslason endurkjörinn formaður Hafnasambands Íslands en 41. hafnasambandsþingi lauk á Grand hóteli í Reykjavík í dag. Þingið sóttu ríflega 100 starfs- og stjórnarmenn hafna víðsvegar um landið. Á þinginu voru flutt margvíslen erindi m.a. um sameinignu hafna, markvissa umhverfisstefnu og stefnumótun í samgönguáætlun.

Þingið samþykkti á annan tug ályktana en gögn frá þinginu, erindi og ályktanir verða birtar hér á vef hafnasambandsins á mánudag.

Gísli Gíslason, nýkjörinn formaður stjórnar Hafnasambands Íslands.