Dregið úr losun í Akureyrarhöfn

Pétur Ólafsson hafnarstjóri á Akureyri, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa undirritað samning um styrkveitingu af fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til rafvæðingar hafnarinnar að upphæð 43,8 m.kr.

Verkefnið gengur út á að setja upp háspennutengingu fyrir flutningaskip, fiskiskip og minni skemmtiferðaskip við Tangabryggju, en undirbúningur framkvæmda er þegar hafinn. Með raftengingunni dregur úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá skipum í Akureyrarhöfn, sem geta þá tengst rafmagni í landi í stað þess að brenna olíu. Um leið dregur úr hljóðmengun frá skipsvélum og rafstöðvum um borð.

Orkuskipti og loftlagsmál eru nátengd og eru orkuskipti lykilþáttur í aðgerðaáætlun Íslands í loftlagsmálum. Unnið er að orkuskiptum á ýmsum sviðum í samræmi við þingsályktun þar um, sem samþykkt var árið 2017. Má þar nefna verkefni sem lúta að orkuskiptum á hafi og í sjávarútvegi og orkuinnviðum þeim tengdum.

Verkefnið er hluti af fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 heimsfaraldursins.

Sjá einnig frétt um úthlutarnir styrkja til orkuskipta í höfnum.