Stjórnir Hafnasambands Íslands og Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga funduðu í vikunni og fjölluðu um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.
Í skýrslunni koma fram margar ábendingar sem sveitarfélög og hafnasjóðir hafa bent á. Telja stjórnirnar mikilvægt að sveitarfélögin, hafnasjóðir og samtök þeirra komu að þeirra vinnu sem framundan er á grundvelli skýrslunnar.
Sameiginleg bókun stjórna Hafnasambands Íslands og Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi felur í sér margar ábendingar sem áður hafa komið fram bæði af hendi sjávarútvegssveitarfélaga sem og fyrirtækja í fiskeldi. Sveitarfélögin hafa haft litla aðkomu að leyfisveitingaferli frá upphafi. Þá hefur eftirlit með atvinnugreininni verið gagnrýnt þar sem skort hefur á samstarf við sveitarfélögin um slíkt ásamt því að tekjustofn af greininni hefur ekki verið tryggður til samfélaganna þar sem eldið er stundað. Einnig hefur verið óskýrt hvernig á að rukka hafnagjöld af þessari atvinnugrein. Skýrslan endurspeglar og dregur fram hve litla aðkomu sveitarfélögin hafa haft að umgjörð atvinnugreinarinnar, ákvarðanatöku og stefnumótun er varðar hana. Í þeirri vinnu sem framundan er á grundvelli skýrslunnar er nauðsynlegt að sveitarfélögin og hafnasjóðir komi að þeirri vinnu ásamt samtökum þeirra.Sameiginleg bókun stjórna Hafnasambands Íslands og Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.