
Sturla Böðvarssonvar, fv. formaður Hafnasambands sveitarfélaga, lést laugardaginn 10. janúar sl. Sturla var öflugur sveitarstjórnarmaður á hafði mikinn og einlægan áhuga á samfélagsmálum og því hvernig hægt væri að vinna að bættum hag landsbyggðarinnar.
Sturla var formaður stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga 1988-1994. Hann var sveitarstjóri og síðar bæjarstjóri í Stykkishólmi frá 1974 til 1991 er hann var kjörinn á þing þar sem hann gengdi m.a. embætti samgönguráðherra. Hann sneri aftur í stól bæjarstjóra kjörtímabilið 2014-2018.
Stjórn Hafnasambands Íslands sendir Hallgerði Gunnarsdóttur, eiginkonu Sturlu, og börnum þeirra sínar dýpstu samúðarkveðjur.