Umsögn um drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og siglingar

Stjórn Hafnasambands Íslands hefur sent í Samráðsgátt umösgn um drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og siglingar. Markmið frumvarpsins er heildarendurskoðun laga um vitamál, en núgildandi lög eru komin til árasinna og hefur verið ákall um heildarendurskoðun þeirra.

Arnarnesviti – mynd af vefnum sjominjar.is.

Í umsögninni fagnar Hafnasambandsið því markmiði frumvarpsins að stuðla að öruggum og greiðum siglingum við Íslandsstrendur. Engu að síður telur Hafnasambandið mikilvægt að þó í frumvarpinu sé verkaskipting stjórnvalda um leiðarmerki skýrð, þá þurfi að skýra fleiri atriði betur. Einkum er bent á þau atriði sem geta haft veruleg áhrif á hafnir og sveitarfélög sem sjá um rekstur og uppbyggingu hafnarvita.

Umsögn Hafnasambandsins skiptist í meginatriðum í fjóra hluta:

  • Áhrif á hafnir og sveitarfélög
  • Kostnaðarmat á fjárhagslegum áhrifum
  • Umsögn um einstök atriði frumvarpsins
  • Að lokum

Umsögn Hafnasambands Íslands um drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga – S-15/2026.