Hafnir Norðurþings

Heiti hafnar: Hafnir Norðurþings.
Aðildahafnir: Húsavíkurhöfn, Kópaskershöfn og Raufarhafnarhöfn.
Heimilisfang: Norðurgarður 5, 640 Húsavík
Sími: 464-6176
Netfang: port@nordurthing.is
Vefsíða: www.nordurthing.is

Yfirmaður hafna:
Þórir Örn Gunnarsson hafnarstjóri

Húsavíkurhöfn
Hafnarvörður: Elías Frímann Elvarsson
Hafnarvörður: Jóhann Gunnarsson
Sími: 464-6175
Vaktsími: 893-9175
Netfang: port@husavik.is
Hafnsaga: Hafnsöguskylda er á Húsavík
Dráttarbátar: Dráttarbátur er staðsettur í höfn
Kallrás hafnar: VHF-rás 12
Hafnsögustaðir: Upplýsingar hjá hafnavörðum

Húsavíkurhöfn telst vera meðalstór fiski- og flutningahöfn.

Hafnarsvæðið á Húsavík skiptist í innri höfn og ytri höfn. Í innri höfn eru fastir viðlegukantar fyrir minni fiskiskip og báta við Þvergarð, Suðurgarð og Naustagarð. Einnig eru fimm flotbryggjur fyrir fiski- og ferðaþjónustubáta. Lengd viðlegukanta í innri höfn eru u.þ.b. 400 metrar af.

Í Ytri höfn eru þrír viðlegukantar fyrir stærri skip og báta. Þvergarður ytri, Norðurgarður og Bökugarður.

Viðlega á Þvergarði ytri er um 90 metrar að lengd og er dýpi um 6 metrar.

Viðlega við Norðurgarð er um 130 metrar að lengd og er dýpi um 8 metrar á c.a. 125 metrum.

Viðlega við Bökugarð er um 220 metrar að lengd og er dýpi um 10 metrar á 200 metrum.

Kópaskershöfn
Hafnarvörður: Guðmundur Magnússon
Sími: 861-2162
Netfang: bryggjan@kopsker.is

Kópaskershöfn er smábátahöfn.

Lengd viðlegukanta er um 120 metrar og er mesta dýpi við kant um 4 metrar á 50 metra kafla.

Flotbyggja er staðsett í höfninni sem rúmar 4 báta.

Raufarhöfn
Hafnarvörður: Gunnar Páll Baldursson.
Sími: 894-2989
Netfang: port@raufarhöfn.is

Raufarhafnarhöfn telst vera meðalstór fiskiskipahöfn en getur einnig tekið við litlum flutningaskipum.

Á Raufarhöfn eru 5 viðlegukantar auk flotbryggju.

Hafnarbryggja er um 90 metrar á lengd og er dýpi um 7,5 metrar.

SR-bryggja er um 46 metrar að lengd og er dýpi þar um 8 metrar.

Löndunarbryggja er um 50 metrar að lengd og er dýpi þar um 6 metrar

Í innri höfn er Kirkjubakki sem er um 52 metrar að lend og er dýpi um 4 metrar.

Á Austurgarði er gömul timburbryggja og flotbryggja fyrir smábáta. Þar er um 2. metra dýpi.