Gísli Gíslason, fyrrverandi formaður Hafnasambands Íslands og hafnarstjóri Faxaflóahafna, hefur afhent Hafnasambandinu skýrslu um gjaldskrármál erlendra hafna. Skýrslan er unnin að frumkvæði Hafnasambands Íslands.
Gísli gerði grein fyrir skýrslunni á hafnasambandsþingi sem haldið var í Snæfellsbæ í lok október. Í máli hans þar kom m.a. fram að þær samantektir sem hann hefur unnið og birtast hér eru hvorki tæmandi né um verkefni né rekstur hafna. Gagnvart gjaldtöku virðast íslenskar hafni...
Lesa meira
Author: Hafnasamband Íslands
Slæmar hefðir
Í veggspjaldi númer 10 í röð 12 hnúta er tekið á þeirri hættu sem fylgt getur slæmum og úreldum hefðum. Á veggspjaldinu er nú sem fyrr bent á fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir þær hættur sem af þessu geta stafað. Mikilvægt er að fólk líti ekki á það sem sjálfgefið að tiltekin venja sé besta og öruggasta leiðin. Það er jafnframt mikilvægt að vera óhrædd/ur við að gagnrýna og endurskoða hefðir.
Hægt er að prenta spjöldin út, nota þau sem skjámyndir, birta þau á sa...
Lesa meira
Þreyta
Það er oft um seinan sem fólk gerir sér grein fyrir þeirri hættu sem stafað getur af syfju og þreytu. Með þessu spjaldi er bent á fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar þess.
Árlega verða mjög alvarleg slys á Íslandi sem rakin eru til þessa og ótal mörg tilfelli þar sem stýrimaður hefur sofnað við stýrið. Þetta er einmitt umfjöll níunda veggspjaldsins í röðinni 12 hnútar.
Á spjaldinu er lögð áhersla á að fólk þekki einkenni þreytu hjá sér og öðrum. Að gerða...
Lesa meira
Skortur á samvinnu – 12 hnútar
Skortur á samvinnu getur leytt til slysa á sjó. Til að fyrirbyggja slíkt er mikilvægt að halda reglulega öryggisfundi og æfingar. Það þarf að ræða nákvæmlega hvað hver eigi að gera þegar óhapp verður og hvernig. Mikilvægt er að leita álits samstarfsfólks og að hugsa upphátt í aðgerðum.
Skapaðu liðsheild varðandi samskipti, samstarf og öryggi - það gæti bjargað lífi!
Lesa meira
Íþyngjandi kröfur
Vitanlega heyrir það til undantekninga að t.d. fjárhagsleg verðmæti séu sett ofar öryggi áhafnar en ef það finnst ein slík undantekning þá er það einni of mikið.
Ef svo ólíklega vill til að gerðar séu íþyngjandi kröfur sem stefnt geta áhöfn í hættu hvetjum við menn til að sýna staðfestu og setja ætíð öryggi báts og áhafnar í forgang. Skoðið sérstaklega þær fyrirbyggjandi aðgerðir sem tilgreindar eru hægra megin á spjaldinu.
Hægt er að prenta spjöldin út, nota þau sem skjámyndir, birta þau...
Lesa meira
Hafnasambandsþing 2022
Í samræmi við 5. gr. laga Hafnasambands Íslands boðar stjórn hafnasambandsins til 43. hafnasambandsþings sem haldið verður í Ólafsvík, Snæfellsbæ, dagana 27. og 28. október 2022.
Samkvæmt 4. gr. laga hafnasambandsins velja aðildarhafnir fulltrúa á hafnasambandsþing og skal fulltrúafjöldi miðast við árstekjur skv. ársreikningi hafnasjóðs næstliðins árs að undanskildum óreglulegum tekjum. Upplýsingar um fjölda fulltrúa hvers hafnasjóðs verða sendar út um leið og aðildarhafnir hafa sent ársreik...
Lesa meira
Vöntun á búnaði
Athuga skal reglulega ástand öryggisbúnaðar og hvort nóg sé af honum fyrir alla um borð. Betra er að hafa of mikið af honum en of lítið. Einnig er mikilvægt að um borð í bátnum eða skipinu séu verkfæri og varahlutir sem hægt er að grípa til ef eitthvað bilar. Einnig er mikilvægt að menn kynni sér nýjungar í öryggisbúnaði og tileinki sér þær.
Okkur langar að hvetja hafnir landsins til að deifa hlekknum á spjöldin (sjá hér fyrir neðan) til allra sem haft geta gagn af. Einnig er hægt að pre...
Lesa meira
Þekkingarleysi
Þekkingarleysi á sjó getur valdið slysum. Sýnum varkárni og fyrirbyggjum slys með því að þekkja og fylgja ætíð nýjustu reglum og leiðbeiningum.
Lesa meira
Ofmat á eigin hæfni
Áfram höldum við útgáfu rafrænna vggspjaldanna í röðinni 12 hnútar. Nú er komið að apríl spjaldinu, því fjórða í röðinni. Að þessu sinni er fjallað um þá hættu sem getur stafað af ofmati á eigin hæfni. Sjálfsöryggi og stefnufesta er vissulega góð en hún verður að grundvallast af opnun huga og hæfninni til að uppfæra og bæta við vitneskjuna sem fyrir er. Að maður sé ætíð tilbúinn að leita nýrra og betri hugmynda og hlusta eftir þeim. Líkt og komið er inn á í spjaldi nr. 3 þá er svokallaður „bes...
Lesa meira
Kæru- og agaleysi á sjó
Síðustu fimm ár hefur ekki orðið banaslys á sjó og slysum hefur fækkað. Öflug fræðsla, aukin öryggismenning og þátttaka atvinnugreinarinnar hefur þar mikil áhrif. Enn verða þó slys og óhöpp þar sem litlu má muna að alvarlegar afleiðingar hljótist af. Veggspjöldin 12 hnútar miða að því að fækka þeim.
Samgöngustofa í samstarfi við Hafnasamband Íslands og fleiri aðila gefur mánaðarlega út veggspjald þar sem hvatt er til aðgátar á sjó.
Í febrúar er athyglinni beint að kæru- og agaleysi.
Lesa meira