Almannavarnir hafa gefið út tilmæli til hafnaryfirvalda vegna COVID-19 kórónaveirunnar sem nú geisar um heimsbyggðina. Meðal tilmæla og leiðbeininga vill Hafnasamband Íslands benda á eftirfarandi:
Captain's declaration on COVID-19 suspect cases on board vessel
COVID-19 og persónuvernd
Infections due to the new Coronavirus, COVID-19. Ports and vessels
Leiðbeiningar til áhafna skipa og starfsmanna og viðbragðsaðila innan skilgreindra sóttvarnarhafna
Leiðbeiningar til starfsfólks h...
Lesa meira
Fréttir
Fiskistofa birtir samanburð á vigtun afla
Fiskistofa birtir reglulega samanburð á vigtun afla hjá vigtunarleyfishöfum þegar eftirlitsmenn hafa staðið yfir endurvigtun og þegar svo hefur ekki verið. Þetta er einn liður í því að gæta hagsmuna þjóðarinnar við sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins með því að tryggja sem best rétta skráningu á afla.
Ætla má af gögnum Fiskistofu að birting þessara upplýsinga hafi skilað marktækum árangri við að gera skráningu á hlutfalli íss og afla réttari, enda hefur Fiskistofa markvist beitt þeirri heimild a...
Lesa meira
Hafnasambandið 50 ára í dag
Hafnasamband Íslands fagnar 50 ára afmæli sínu í dag, þriðjudaginn 12. nóvember, en hafnasambandið var stofnað þann dag árið 1969 að frumkvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga og hét þá Hafnasamband sveitarfélaga. Í byrjun voru 28 sveitarfélög aðilar að hafnasambandinu og fyrsti formaðurinn var Gunnar B. Guðmundsson hafnarstjóri í Reykjavík. Með honum í stjórn voru svo fulltrúar frá Eyrarbakkahöfn, Siglufjarðarhöfn, Ólafsvíkurhöfn og Eskifjarðarhöfn.
Árið 2004 var nafni sambandsins breytt í Haf...
Lesa meira
Svipmyndir frá Hafnafundi 2019
Ingibjörg Hinriksdóttir, tækni- og upplýsingafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, var með myndavélina á lofti á hafnafundinum í Þorlákshöfn og tók meðfylgjandi myndir.
Lesa meira
Níundi hafnafundur haldinn í Þorlákshöfn
Níundi hafnafundur Hafnasambands Íslands stendur nú yfir í Þorlákshöfn. Hafnafundur er ætlaður sem almennur kynningar- og fræðslufundur fyrir starfsmenn og stjórnendur hafna um tiltekin málefni sem stjórnin ákveður. Hafnafundur er öllum opinn og tekur ekki ákvarðanir í málefnum Hafnasambands Íslands en getur beint ályktunum til stjórnar hafnasambandsins.
Í setningarræðu sinni minnti Gísli Gíslason, formaður hafnasambandsins, að Hafnasamband Íslands fagnar á þessu ári 50 ára afmæli. Hafnasamban...
Lesa meira
Óskað eftir umsögn um drög að reglugerð um gerð strandsvæðisskipulags
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að reglugerð um gerð strandsvæðisskipulags.
Um er að ræða nýja reglugerð sem byggir á lögum um skipulag haf- og strandsvæða. Lögin fela í sér það nýmæli að í fyrsta skipti verði hér á landi unnið að gerð skipulags fyrir strendur Íslands.
Samkvæmt lögunum er strandsvæðisskipulag unnið fyrir tiltekið afmarkað strandsvæði. Þar koma fram markmið og ákvarðanir um framtíðarnýtingu og vernd og þær framkvæmdir sem geta fallið að nýtingu svæ...
Lesa meira
Hvað er svona merkilegt við það?
Ráðstefna um konur og siglingar á alþjóðasiglingadeginum 26. september 2019
Alþjóðasiglingadagurinn er í ár helgaður konum. Af því tilefni standa samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Siglingaráð fyrir ráðstefnu fimmtudaginn 26. september undir yfirskriftinni Hvað er svona merkilegt við það?
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur ráðstefnuna, en meðal fyrirlesara má nefna Joanna Nonan, aðmírál í bandarísku strandgæslunni og strandveiðikonuna Halldóru Kristínu Unnarsdóttur en hún r...
Lesa meira
Tjónið á Kleppsbakka líklega nær 100 milljónum
Talið er að tjónið sem varð, þegar danska flutningaskipið Naja Arctica sigldi á Kleppsbakka í lok síðasta mánaðar, nemi um hundrað milljónum. Málið var rætt á fundi Faxaflóahafna í gær þar sem lagt var fram minnisblað og samskipti vegna árekstursins.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir í samtali við fréttastofu að panta þurfi stálplötur að utan. „Síðan þarf að rífa upp þekjuna, þjappa og ná burði.“ Og svo séu þa...
Lesa meira
Skynsamlegt skref að banna svartolíuna
„Við hjá Faxaflóahöfnum höfum lengi nefnt að það sé ástæða til að takmarka notkun svartolíu í landhelgi Íslands, undir þeim formerkjum að til þess að ná árangri í loftslagsmálum að þá verður að grípa til aðgerða. Þess vegna erum við sammála þessari aðferðarfræði,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Greint var frá því á föstudag að umhverfis- og auðlindaráðuneytið óski eftir umsögnum um drög að reglugerðarbreytingu sem bannar notkun svartolíu i...
Lesa meira
Flutningaskip sigldi inn í Kleppsbakka
Af mbl.is (26.05.2019)
Danskt flutningaskip stórskemmdi bryggjuna við Kleppsbakka í morgun þegar það sigldi á hana og skemmdi. Tjónið hleypur á tugum milljóna. Orsakir slyssins liggja ekki fyrir.
Á áttunda tímanum í morgun kom skipið, Naja Arctica, til Sundahafnar og átti að lenda við Kleppsbakka. Það beygði ekki sem skyldi heldur stefndi beint inn í bryggjuna, með þeim afleiðingum að það kom gat á bryggjuna og stefnið á skipinu klauf stálþilið í bryggjunni.
S...
Lesa meira